Eva Ruza hefur áralanga reynslu af því að stýra fjölbreyttum viðburðum og er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu, beittan húmor og einstaklega góða nærveru. Hún á auðvelt með að ná til ólíkra hópa og skapa afslappaða og skemmtilega stemningu þar sem gestir verða hluti af gleðinni. Hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaviðburð, brúðkaup eða stærri skemmtun tekur Eva utan um dagskrána, tengir atriðin saman og passar að kvöldið haldi góðu flæði. Eva hentar sérstaklega vel þegar þú vilt veislustjóra sem gerir meira en að kynna næsta atriði – hún setur sinn svip á kvöldið og hjálpar til við að gera viðburðinn eftirminnilegan.